Örþunnar og góðar tortillakökur sem eru ótrúlega einfaldar!
2 egg
2 eggjahvítur
170g rjómaostur/smurostur
1-2 tsk husk
1 msk möndlumjöl/kókoshveiti
salt
Stífþeytið eggin og hvíturnar (eins mikið og það stífnar með rauðunum í). Bætið rjómaostinum út í og þeytið þar til allt er jafnt. Bætið þurrefnum út í og hrærið áfram.
Dreifið jafnt í kökur, eða á heila ofnplötu. Deigið dugar á 2 stóra ferninga (ekki alveg 2 heilar ofnskúffur).
Þessi uppskrift er af https://www.dietdoctor.com/recipes/low-carb-tortillas
Þar er gefið upp að það eru 6g af kolvetnum í allri uppskriftinni og að hún eigi að duga fyrir 2 🙂